Brasilíufarinn mikli

Tad var nu heljarmikid aevintyri sem eg kom mer i tegar eg akvad ad fara sem skiptinemi. En veistu tad eg held tad aetli ad hafa alveg frabaerann enda sem er ekki af verri kantinum! Tvi eg kvaddi litlu elfjallaeyjuna mina med tarum til ad ferdast um frumskoginn og bua med indianunum..svona naestum tvi. Fylgstu bara med hvernig sagan fer...

föstudagur, desember 29, 2006

Med von um farsaelt komandi ár!

Sael veridi kaeru lesendur og takk allir fyrir smá jólakvedjur...

Ég sit hér enn og einusinni á netkaffi og reyni ad finna út hvad er ad gerast, eins og vanalega gengur tad ekkert alltof vel. Tad er ótrúlegt magn af upplýsingum sem komast einhvernveginn bara aldrei til mín og heyri ég um hluti mjog oft í gegnum Mommu hinumegin á hnettinum sem ad mér finnst algerlega út í hott.

En lítill fugl hvísladi tví ad mér ad fólkid á klakanum vaeri mjog spennt ad vita hvernig jólin hér í úlandinu hefdu verid. Nú tad var nú bara ekkert spes... Ég taladi baedi vid mommu og pabba á adfangadag og var tad alveg indislegt og mikid vona ég ad pakkarnir mínir fari ad koma. Um svona 10 leytid fór ég heim til vinkonu minnar og tangad komu mjog margir sem ég tekki. Maturinn var hreint út sagt fremur vondur ad undanskyldum kalkúninum. Og svo audvitad plómunum sem ég át ógrynnin oll af. Á slaginu 12 var ollum óskad gledilegra jóla og pakkarnir fundnir. Ég fékk 3 ágaetis pakka, nei annars. Fékk jólabolla med 4 súkkuladimolum, broskalls/bangsa/lykklakyppu...er allt tetta trennt í einu, og súkkuladisnjókall. En tar sem ég bjóst ekki vid neinum pakka tá var tetta alveg frábaert. Frá 10 til nánast tví 12 tá sat ég vid tolvuna hlustandi á bylgjuna eda eitthvad álíka sem hafdi jólalog, íslensk jólalog.
Mér leid nú ekki jólalega samt get ég sagt ykkur, vinur minn fór úr bolnum af tví tad vaeri heitt og ég sendi hann strax í hann aftur á jólunum vaeri fólk í fotunum allt kveldid tví tad vaeru jólin! Og allir drekkandi bjór á jólunum, mér finnst tad nú ekki rétt!

Ég gisti tarna hjá vinum mínum og daginn eftir fór ég heim til ommu teirra systkinanna og vid eyddum deginum í sundlauginni sem var gott tví tad var allt, allt of heitt á jóladag get ég sagt ykkur. Tegar ég kom heim voru systur mínar farnar á strondina, mér hafdi verid bodid med en aftakkadi gott bod. Tad ad fara á strondina er ekki eins med hverjum sem tú ferd. Og med systrum míunm og einhverju fólki sem ég tekki ekki hefdi líklega verid verstu dagar á strondinni.

En nú er óg komid um jólin, lífid gengur bara sinn vanagang af leidindum og nánast tví engu ad gerast, sérstaklega tví ad síminn minn dó tarna skommu fyrir jól svo ég hef engin símanúmer. Baedi Marten og Alex verda í Rio um áramótin og ég fer á einhvern bóndabae. Tad verdur skulum vid segja áhugavert, vonandi skemmtilegt.

Svo ég óska ollum farsaels nýs árs,
kossar og knús!
Sprengid einstaklega mikid af flugeldum fyrir mína hond!

kvedja litli skiptimidinn í Brasilíu
Lilja

5 Ummæli:

  • Þann 4:13 f.h. GMT+0 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Hae Lilja mín! Mér tykir ofbodslega leidinlegt ad heyra hvad tér leidist, tetta er algjort bull og mér finnst omurlegt hvad tessi skiptimidaskrifstofa gerir lítid fyrir tig:( Verd samt ad segja ad ég vorkenni tér ekki af tessum ferdum sem tú hefur farid í, taer hljóma ótrúlega spennandi. Ég vona bara ad tetta fari eitthvad ad skána og ad tad verdi gaman á bóndabaenum um áramótin.

    Kaer kvedja, Helga systir

     
  • Þann 5:27 f.h. GMT+0 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Leiðinlegt að þér leiðist svona, en það eru samt þó nokkrir mánuðir eftir og ég er alveg viss um að þú fáir alveg nóg skemmtilegt að gera.

    Ef það hjálpar eihvað þá voru jólin hjá mér ekkert sérstök heldur. Eina sem var eihvað gott voru bara jólaboðin því þá þurfti é ekki að vera heima.

    En það góða við aðfangadagskvöldið var að maturinn sem ég eldaði hepnaðist bara nokkuð vel og það er aldrei að vita nema maður bjóði þér í matarboð þegar þú kemur til baka.

    En allaveganna, Gleðilegt nýtt ár
    kv. Þórarinn

     
  • Þann 10:01 e.h. GMT+0 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Gaman að heyra frá þér. Ég veit ég er ekki búin að vera dugleg að comenta hjá þér en annars. Vonandi að þú finnir þér eitthvað skemmtilegt að gera. Geleðileg jól og nýtt ár ;*

     
  • Þann 4:33 e.h. GMT+0 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Gleðilegt nýtt ár Lilja mín!!
    Mér líður mjög illa yfir því að þér líður illa þarna. :( ég sakna þín svo!!
    Ég var að skrifa bréf til þín.. á ég að senda það á addressuna sem að stendur hérna á síðunni?
    Láttu í þér heyra skvísa!!
    Me love you! :*

     
  • Þann 6:59 e.h. GMT+0 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Halló Lilja mín, gleðileg jól og ár, leiðinlegt að heyra hvað þér leiðist alltaf. Við Auðhumla keyptum reyndar handa þér jólagjöf en höfum ekki komist í að senda hana (peningaleysi aðallega). Ég vona að þú hafir skemmt þér á þessum bóndabæ, forvitnilegt að heyra! Loves, Telma.

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim