Brasilíufarinn mikli

Tad var nu heljarmikid aevintyri sem eg kom mer i tegar eg akvad ad fara sem skiptinemi. En veistu tad eg held tad aetli ad hafa alveg frabaerann enda sem er ekki af verri kantinum! Tvi eg kvaddi litlu elfjallaeyjuna mina med tarum til ad ferdast um frumskoginn og bua med indianunum..svona naestum tvi. Fylgstu bara med hvernig sagan fer...

föstudagur, júlí 07, 2006

The Afonso family

Það er nýja fjölskyldan mín sem ég mun vonandi búa hjá í tæpt ár í bæ sem heitir Ubá og er í Minas Geiras. Þarna á ég að minnsta kosti mömmu og 2 systur en ég veit ekki hvort ég eigi nokkurn pabba. Ég hef aldrei átt yngri systur svo það verður vonandi gaman. Nú í dag eru 27 dagar þar til ég fer, það er geggjað stutt. Það er samt svo mikið æði! Vá ég þarf að fara að plana partý...eða reyna það að minnsta kosti. Og svo þarf ég að klára nokkrar afmælisgjafir...

Annars geri ég lítið annað en að sofa, lesa og vinna þessa dagana. Ligg í sólbaði og les...mmmm...það er næs. Loksins koimð gott veður. En já meira seinna. Bæjó