One month
Já það er rétt mánuður þar til ég fer, reyndar 33-34 dagar til að vera nákvæmur. Ég er farin að verða svolítið stressuð. Líka af því ég er enn ekki komin með neina fjölskyldu sem er hálf óhugnanleg tilhugsun. Og skrítið að vera að fara til einhvers ókunnugs fólks. Þarf að fara að huga að því að kaupa einhverja pakka, eitthvað svona smávægilegt. Svo þarf ég að klára ýmsa hluti hér heima, og bara kveðja fólk og svona. En ég þarf líka að fá vegabréfsáritun og fara í aðra bólusetningu áður en ég fer út en það ætti ekki að vera of mikið mál.
Hlakka samt gífurlega til að fara, krossa bara putta og vona það besta.
Hlakka samt gífurlega til að fara, krossa bara putta og vona það besta.
