Alveg að koma að þessu

Jæja aðeins 2 dagar þar til maður hverfur af landi brott, undarlegt vægast sagt.
Á eftir að sakna svo margra og svo margs en það koma líklega bara einhverjir aðrir í staðinn. svo kemur maður líka aftur eftir 11 mánuði eða svona rúmlega. Búin að vera á fullu í dag, byrja að pakka og labba um alla smáralind að leyta að galla-buxum, sem virðist vera nánast því ógerningur fyrir mig. Ég meika ekki að versla því ég gefst bara upp. Enda indislegt veður og þvílík sóun að vera inni í því.
Hvað sem því líður þá er mjög skrítið að fara og næsta blogg verður frá Brasilíu, sem er líka mjög skrítið. En já meðan ég man þá þarf ég að koma upp myndasíðu.
Þar til úti, veriði sæl

2 Ummæli:
Þann 7:10 e.h. GMT+0 ,
Nafnlaus sagði...
hallo, gaman ad rekast a tig a leifstod i dag! hehe =] ekki gleyma myndasidunni!
Gunnarr
Þann 10:42 e.h. GMT+0 ,
Björkin sagði...
Strax farin að sakna þín. Hlakka til að heyra ferðasöguna.
Knús
Stóra frænka
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim