Foreldrar eru mýflugur
Staðreyndin um foreldra er sú að þeir eru bansett mý, þeir hringsóla í kringum mann og reyna að hafa áhrif á mann og stundum tekst það og þú hleyour undan í ofboði. Þeir stinga á verstu stöðum og stundum og eru mjög illskeyttir og illkvittnir. Mér satt að segja líkar ekkert sérstaklega vel við foreldra og þá er ég ekki bara að meina mína heldur foreldra yfir höfuð. Annað hvort eru þeir of verndandi eða van, beita mann andlegu ofbeldi eða eru bara ekki á staðnum. Samt eiga sumir góða foreldra og þeir mega teljast heppnir. Kannski er það bara að foreldrarnir séu orðnir bitrir því að líf þeirra er hálfnað og það sem þeir sjá sem gullna tímann þegar þeir stóðu í blóma er búinn....
Ég vil samt meina að eins og ég hata mý þá hata ég foreldra, en það er vegna þess að þeir eru pirrandi eins og mýið. En hvort tveggja er gott stundum þegar litið er á björtu hliðarnar, "og innst inni elska foreldrarnir þig" eða svo er sagt....