Gæti maður breytt heiminum yrði maður samt sem áur ekki ánægður með útkomuna
Það er ótrúlegt hvað lítið þarf til að gera mig óörugga og leiða. Þó ég virðist kannski í góðu skapi og þannig þá er það ekki nærrum alltaf þannig. Núna er það þannig að ég horfði á þessa mynd, Cinderella story-nútíma útgáfa af Öskubusku. Og hvað gerist, ég verð voða einmana. Mig langar líka. Loksins hefur stóri frændi minn fundið sér sambýliskonu og frænka mín, ja, það virðast tveir menn vera að reyna við hana. Einn nýsjálendingur og einn englendingur, sem er mjög gott, en samt líður mér svolítið svona eins og ég sé svolítið út undan. Þó að ég sé mikið yngri, ég get ekki beðið eftir að stækka og verða eldri, þó að ég eigi eftir að sakna þess að vera táningur. Ég vil ekki verða mikið eldri bara aðeins. Svona eins og bara þrjú ár. Ég hef ákveðið að sækja um sem skiptinemi á næsta ári. Hverjum er ekki sama þótt ég klári ekki skólann ári fyrr eða seinna? Ég veit að mig langar til að fara, kynnast einhverju nýju og hitta nýtt fólk. Eina sem í alvöru aftrar mér er dansinn, gæti ég komið aftur og verið jafningi þeirra sem ég er núna með?
Það liggur við að ég sakni Hössa svo mikið að ég hringi í hann og bið hann um að vera góðann við mig og ekki vera vondan. Því mig langar bara í einhvern sem er dolfallinn af mér og eins og í þessari mynd, eða svipuðum myndum. Rómantískan en samt vel máli farinn og klárann og í góðu formi. Af hverju eru ekki þannig strákur á eftir mér. Því að þannig er það ekki og ég er ekki áhugaverð fyrir þannig strák. Annars veit ég ekki um neitt áhugavert fyrir strák að sjá í mér. Ég skil ekki hvað þeir sjá í mér. Ekki það að ég hafi yfirhöfuð fengið mikla athygli frá þeim. Reyndar þvert á móti. Mér líður eins og ósýnilegu stelpunni, sem enginn tekur eftir. Og endar annaðhvort þannig að hún fær draumaprinsinn og hann svíkur hana þó hann sé "head over heals" yfir henni eða þá að hún deyr eða fremur sjálfsmorð eða eitthvða því um líkt. Ég er ekki sæt, ekki skemmtileg, og ekki góður hlustandi. Ég er eiginlega bara ég, ofboðslega óáhugaverð og leiðinleg manneskja sem vill ekkert meira en allir aðrir. Og enginn tekur virkilega eftir. Það er væntanlega þess vegna sem ég ríghélt svona í hann Hörð, því að hann tók eftir mér og tók eftir því að ég væri svolítið döpur þó ég léti líta út fyrir annað. Ég í raun þrái bíómyndalíf sem ekki er fyrir neinn, það er ótrúlegt hvað ég er í reun venjuleg þó ég vilji láta líta út fyrir annað. En nú skal ég hætta að kvarta í þér. Það er nóg komið af því. Mig langar bara svo ósköp mikið í einhvern æðisgenginn. Einhvern tiltölulega fullkominn, draumaprins.