Próf eru ömurleg
Prófatíminn er ömurlegur, ekki aðeins fyrir prófanna sakir heldur einnig fyrir vinanna sakir. Allir þykjast vera svo uppteknir en í raun eru það aðeins nokkrir útvaldir sem virkilega læra þegar maður hringir því manni leiðist sjálfum svo mikið við að læra. Hins vegar er það svo, að því að ég tel, að vegna þess að ég fæ góðar einkunnir þá virðist fólk ósjálfrátt halda það að ég hafi ótrúlega mikið að gera um prófatímann. Aftur á móti er það hið mesta bull og vitleysa og er prófatíminn sá tími sem mér leiðist einna mest. Það er einmitt sá tími sem ég þarf mest á félagslegum stuðningi jafnaldra minna að halda, því jú hver þolir að haldast við heima heilu dagana að reyna að sannfæra sig um að þú sért að læra, og ekki hittir maður þá í skólanum lengur. Og svo þegar þú tekur þér frí um kvöldið því að þú ert of þreyttur til að læra þá hefur enginn af þeim sem sögðust ætla að hringja eða eitthvað annað (að lágmarki senda manni hugskeyti) samband. Svo þannig lendir það að þú, eða í þessu tilviki ég þar sem þú hefur örugglega hugsað fyrir þessu og bara farið út, situr heima og horfir á bíómynd sem fjölskyldan tók saman úti á videoleigu og lætur þér leiðast. Ekki furða að mér finnist þetta leiðinlegast tími ársins, því að ef mér leiðist á öðrum tímum en prófatímum get ég að minnsta kosti litið í góða bók án þess að líða illa yfir að ég sé ekki að les undir enn eitt prófið.

0 Ummæli:
Skrifa ummæli
Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]
<< Heim