Brasilíufarinn mikli

Tad var nu heljarmikid aevintyri sem eg kom mer i tegar eg akvad ad fara sem skiptinemi. En veistu tad eg held tad aetli ad hafa alveg frabaerann enda sem er ekki af verri kantinum! Tvi eg kvaddi litlu elfjallaeyjuna mina med tarum til ad ferdast um frumskoginn og bua med indianunum..svona naestum tvi. Fylgstu bara med hvernig sagan fer...

sunnudagur, nóvember 13, 2005

Hvítur svarar fyrir sig

Nú hefur hvítur svarað smá fyrir sig, en jafnóðum hefur sóknum hans verið hrint á bak aftur. Snjórinn hefur komið og reynt að lífga tilveruna en myrkrið, rigningin og veturinn tekið hann aftur til baka.

Svo koma prófin hámark svartleiklans, en að þeim loknum koma jólin, dýrð ljóss og friðar sem hlýtur að þýða að í smá stund hefur hvítur yfirhöndina í gráma hversdagsleikans.

RuglumSullumBullumFullumLullum

Jæja jæja. Það er langt síðan síðast, ég er meðal annars orðin 17 ára, komin með bílpróf og ýmislegt fleira.

Vá ég hef einhvernveginn ekkert sem ég get sett fram hér, sem er óaðlilegt því oftast nær koma hlutirnir bara strax útúr mér. Það er auðvitað spurningin hvort einhver kíkji á þessa síðu eða hvort ég gæti skrifað hvað sem er og enginn vissi af því. Ef það seinna er rétt er það geggjað þægilegt, því þá kemst ég sjálf að bloggunum mínum en enginn nennir að lesa þau og ég bara eitthvað í gúddí fíling að tala við sjálfa mig á bloggsíðu. Mér finnst það ekkert sorglegt ef þið hafið verið að pæla í því. En ef það væri eins og ég lýsti rétt áðan þá er ég alltaf að tala við sjálfa mig í fleirtölu sem mér finnst enn skondnara.

En annars þá á ég bara í smá kreppu núna, sem að ég held að leisist úr bráðum. Tekur bara smá tíma alltaf fyrir mig að átta mig á hlutunum og svo að taka ákvarðanir. Svo er ég bara eitthvað leið núna...allt svo eitthvað stórt finnst mér og ég svo lítil. En ég er líka lítil og flestir stærri en ég :P Svo það er líklega ekkert óeðlilegt.

Annars var ég að pæla rétt um daginn hvað lyklaborð væru skrítin. Stafirnir eru svo útum allt og í engri röð en samt er maður ótrúlega snöggur að skrifa á þetta...Ég er hinsvergar komin út í eitthvað þvílíkt rugl svo ég held ég segji bara góða nótt og gleðilegan nóvember.