Brasilíufarinn mikli

Tad var nu heljarmikid aevintyri sem eg kom mer i tegar eg akvad ad fara sem skiptinemi. En veistu tad eg held tad aetli ad hafa alveg frabaerann enda sem er ekki af verri kantinum! Tvi eg kvaddi litlu elfjallaeyjuna mina med tarum til ad ferdast um frumskoginn og bua med indianunum..svona naestum tvi. Fylgstu bara med hvernig sagan fer...

þriðjudagur, september 06, 2005

Er örugglega september?

Ég er hreint út sagt ekki viss. Er septemberbyrjun eða er nóvember við það að ganga í garð? Ég var á leiðinni heim af æfingu núna bara rétt áðan og hélt að eyrun ætluðu af mér ég sver það. Svo þegar ég kom úr honum hér í Spönginni og verð litið upp í himininn hvað er þar? Þið gætuð giskað á stjörnur, og hefðuð rétt fyrir ykkur. Eða óendanleiki, það mætti deila um hvort þið hefðuð rétt fyrir ykkur þá. En nei ekkert af þessu er óvenjulegt á þessum árstíma. En það að sjá norðurljós í sínum mesta skrúða er ekki eitthvað sem maður býst við í byrjun septembermánaðar.
Ég er svo pakkfull alla daga af hlutum til að gera að ég hef ekki tímatil að hugsa og fá smá næði. Þess vegna er tónlist æðislegasta fyrirbæri í heiminum. Hún róar mann niður, kætir mann upp og bara allt sem hægt er að hugsa sér. Ég elska tónlist og ég elska iPodinn minn. En mest af öllu elska ég lífið sjálft því það er það besta sem hægt er að hugsa sér. Og fólk á að lifa lífinu eins og það vill en án þess að eyðileggja eitthvað fyrir öðrum. Og koma fram við aðra eins og það vill að aðrir komi faram við mann, þó maður gleymi því stundum þá eru þetta góðar reglur. Ég reyni að fara eftir þeim og gera aldrei á hlut annarra þó það sé eiginlega ekki hægt þá er hægt að reyna.

Lilja

Ég vil bara bæta við boðskap eins og í laginu:

Ég elska alla og engan þó
Ég elska alla um ár og síð
Veit ég þó varla hvða veldur því

0 Ummæli:

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim