Brasilíufarinn mikli

Tad var nu heljarmikid aevintyri sem eg kom mer i tegar eg akvad ad fara sem skiptinemi. En veistu tad eg held tad aetli ad hafa alveg frabaerann enda sem er ekki af verri kantinum! Tvi eg kvaddi litlu elfjallaeyjuna mina med tarum til ad ferdast um frumskoginn og bua med indianunum..svona naestum tvi. Fylgstu bara med hvernig sagan fer...

miðvikudagur, apríl 20, 2005

Lífið er leikur einn

Haha...var sá hinn sami og sagði þetta ekki bara í vímu? Hann eða hún hefur allaveganna ekki verið með réttu ráði svo mikið er víst. Hvaða vitleysingi dettur í hug að segja svona fáránlegan hlut þegar lífið er allt annað en einmitt þetta sem þú vildir helst að það væri. Tuss, það er ekki nógu gott? Ja líf mitt er allaveganna ekki leikur einn, það er alltaf eitthvað að ske eða að angra mig eða eitthvað. Núna á föstudaginn kom Hössi, minn fyrrverandi (skondið að segja það). Við töluðum saman því hann hafði eitthvað svo mikilvægt að segja mér, og viti menn var það ekki eitthvða sem ég hefði alveg verið til í að vita ekki. Hann sagði mér að eftir að hann ég hringdi í hann mánudaginn fyrir og bað hann að láta mig í friði þá hefði hann farið út að drekka. Á mánudagskveldi og orðið nógu fullur til að muna illa eftir kvöldinu. Var mín hneiksluð eða var mín hneiksluð? Svo hélt þetta áfram og ekki batnaði það. Þá hafði minns ex bara farið aftur út á þriðjudag til að reyna að gleyma minni og orðið mjög fullur, farið svoldið mjög langt með stelpu en ekki getað samt klárað því ég kom í hugann á honum. Afsakið en ég fæ svakalega mikla klígju. Það á ekki að segja manni svona hluti. Ég gæti öskrað ojjj í marga daga yfir þessu. Hugsaðu þér; þarna er hann með annarri stelpu, að kyssa hana og meira og ég í hausnum á honum. Fær fólk ekki bara klígjuna? Svo mætti hann þunnur í skólann, hvað er málið með þennan gaur? En ekki meira af honum, hann er ekki lengur til. Ekki hjá mér, ekki núna. Ekki eftir þetta.

1 Ummæli:

  • Þann 10:28 f.h. GMT+0 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Ok. Langt er ekki langt. Hann hélt í hendina á stelpu og ekkert meira en það. þetta var rugl. En jæja, bara best að hafa þetta hér.

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim