Brasilíufarinn mikli

Tad var nu heljarmikid aevintyri sem eg kom mer i tegar eg akvad ad fara sem skiptinemi. En veistu tad eg held tad aetli ad hafa alveg frabaerann enda sem er ekki af verri kantinum! Tvi eg kvaddi litlu elfjallaeyjuna mina med tarum til ad ferdast um frumskoginn og bua med indianunum..svona naestum tvi. Fylgstu bara med hvernig sagan fer...

sunnudagur, apríl 24, 2005

Dansi dansi dúkkan mín

Jæja, ég er í mun betra skapi en seinast. Líður mun betur eftir að hafa fengið að slappa af í sumarbústað. Núna er minns bara vel upplögð þótt hún sé svoldið þreytt og hafi næstum sofnað á danssýningu áðan. Það er ekki hægt að taka mark á þeim, þó ég elski dans þá fer ég alltaf a danssýningu þegar ég er útkeyrð og sofna, dotta eða er nálægt því. Ég var þvílíkt ánægð með að Telma sendi mér SMS á laugardaginn og Dagur reyndi að hringja, ég á vini :D Það hressti mig ansi mikið upp í morgun að sjá það. Ég hef komist að því að þó ég passi kannski ekki alveg inní alltaf þá skiptir það engu máli því ég er bara ég og þó enginn sjái mig þá held ég bara áfram á minni braut og læt mér álit annarra sem vind um eyru þjóta. Samt er ég kröfuhörðust á sjálfa mig, en það er allt annað, vinir eiga að vera ánægðir með vini sína eins og þeir eru og vera ekkert að bögga þá með því að segja að þeir eigi ekki að vera svona eða svona. Eða að þeir séu svona eða svona. Það er ekkert sniðugt og treystir vinasambandið ekki þó að vinir eigi að vera hreinskilnir hvor við annan. Ég vil heyra hvað vinkonum mínum finnst en ekki heyra að ég sé svona eins og þetta eða hagi mér alltaf svona. Þá verður maður svo niðurdreginn, og fer að pæla í hlutum sem skipta yfirhöfuð ekki máli. Ég komst að því að ekkert meira en að Hössi og þessi stelpa héldust í hendur, hvers vegna þarf ég alltaf að misskilja allt? Ja allt sem gæti verið tvírætt misskil ég, það er gaman stundum en getur farið út í öfgar. Það var gott að vita, ég sá fyrir mér hann að kyssa einhverja stelpu eða meira, OJ. Gott að vita svona eftir á þegar þú ert búinn að ímynda þér eitthvað? En jæja þetta á ekki að verða nein móral-sjálfsvorkunnarsíða. Það er ekkert gaman, selfcentered síður eru ekkert skemmtilegar. Skemmtilegustu síðurnar eru síður með pælingum sem allir skilja og eru svona aha yfir ;P

1 Ummæli:

  • Þann 10:46 e.h. GMT+0 , Anonymous Nafnlaus sagði...

    Hæ Lilja!
    Rakst á heimasíðuna þína, þar sem ég óvart var að spæja um þig á netinu!!! HEHE

    Rúna frænka fylgist með "always on duty"

     

Skrifa ummæli

Gerast áskrifandi að Birta ummæli [Atom]

<< Heim